Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 13. október 2015 22:18
Magnús Már Einarsson
Drög að styrkleikaflokkum - Hvaða lið verða með Íslandi í riðli?
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Á myndinni hér að neðan má sjá drög að niðurröðun í styrkleikaflokka fyrir dráttinn í riðla á EM á næsta ári.

Dregið verður í riðla í París þann 12. desember næstkomandi.

Ísland verður í fjórða styrkleikaflokki og getur því ekki verið í riðli með liðum sem eru í þeim styrkleikaflokki.

Í næsta mánuði keppa átta lið í umspili um fjögur síðustu sætin á EM. Þau lið eru rauðletruð í drögum að styrkleikalistanum hér að neðan.

Tvö efstu liðin í hverjum riðli á EM fara áfram í 16-liða úrslit sem og fjögur lið með bestan árangur í 3. sæti í riðlunum sex.
Athugasemdir
banner
banner