Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 13. október 2015 22:05
Alexander Freyr Tamimi
skrifar frá Konya
Jóhann Berg: Nú förum við að hlakka til Frakklands
Icelandair
Jóhann Berg hlakkar til að fara á EM.
Jóhann Berg hlakkar til að fara á EM.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson, kantmaður íslenska landsliðsins, var svekktur eftir að liðið tapaði 1-0 gegn Tyrklandi í lokaumferð undankeppni EM 2016 í kvöld.

Strákarnir vildu meina að Tyrkland hefði aldrei átt að fá aukaspyrnuna sem leiddi til sigurmarksins frá Selcuk Inan undir lok leiks.

Lestu um leikinn: Tyrkland 1 -  0 Ísland

„Þetta var mjög svekkjandi, sérstaklega þar sem ég held að það sjá það allir að þetta var ekki aukaspyrna sem Kári fékk á sig. En svona er þetta fótboltinn," sagði Jóhann Berg við Fótbolta.net eftir leikinn.

„Við náðum ekki að búa til eins mörg færi og við vildum í dag en að sama skapi vorum við með nokkuð gott "control", þeir voru ekki að búa til hættuleg færi og svo fáum við þessa aukaspyrnu í andlitið og hann klárar þetta mjög vel. En þetta var auðvitað aldrei aukaspyrna, það er auðvitað dapurt hjá dómaranum í dag."

Þrátt fyrir að Ísland hafi einungis fengið tvö stig úr síðustu þremur leikjum sínum í keppninni hefur Jóhann Berg litlar áhyggjur.

„Það skiptir svosum engu máli, við erum komnir á EM og við náðum okkar markmiði þó við hefðum viljað vinna þennan riðil. Ég held að það sé ekki hægt að kvarta yfir því að Ísland sé komið á EM. Auðvitað er sjálfstraustið í botni og nú förum við bara að hlakka til Frakklands. Það verður snilld að fara þangað og taka þátt í þessu stórmóti, það verður auðvitað bara geðveikt," sagði Jóhann Berg.
Athugasemdir
banner
banner