Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. október 2015 12:25
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Leikmenn með sorgarbönd í kvöld
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik Tyrklands og Íslands í undankeppni EM karlalandsliða 2016 í kvöld verður fórnarlamba sprengjuárásanna í Ankara í Tyrklandi minnst með táknrænum hætti.

Fyrir leikinn verður einnar mínútu þögn á leikvanginum í Konya og munu leikmenn beggja liða jafnframt bera sorgarbönd i leiknum.

Árásirnar áttu sér stað síðastliðinn laugardag og samkvæmt fréttum létust um eitt hundrað manns, og á fimmta hundrað særðist.

Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara íslenska liðsins, vottaði tyrknesku þjóðinni samúð sína fyrir hönd íslenska landsliðsins á fjölmiðlafundi á mánudag.

Leikurinn í kvöld hefst 18:45 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net
Athugasemdir
banner