Ögmundur Kristinsson, markvörður íslenska landsliðsins, var svekktur eftir 1-0 tapið gegn Tyrklandi í undankeppni EM 2016 í kvöld.
Ögmundur var við það að halda hreinu í sínum fyrsta keppnisleik fyrir landsliðið áður en hann fékk á sig svakalegt aukaspyrnumark undir lokin.
Ögmundur var við það að halda hreinu í sínum fyrsta keppnisleik fyrir landsliðið áður en hann fékk á sig svakalegt aukaspyrnumark undir lokin.
Lestu um leikinn: Tyrkland 1 - 0 Ísland
„Það er pirrandi að tapa fótboltaleik og þeir gera svosum ekki neitt. Þeir fá gefins aukaspyrnu og svo ákveður hann að smyrja hann upp í samúel. Það var lítið hægt að gera í því. Ég náði að snerta hann en þetta var það góð aukaspyrna að ég hefði þurft að svindla mjög mikið til að ná honum. Allt credit til hans, þetta var frábær aukaspyrna," sagði Ögmundur, sem var sáttur með eigin leik.
„Það gekk bara vel, ég fann það vel að hafsentarnir treystu mér til að fá boltann til baka og það var bara frábært. Allt annað gekk vel í leiknum."
„Það er alltaf gaman að spila þar sem það er góð stemning og skemmtilegt að spila þar sem það eru klikkaðir áhorfendur, það verður að segjast eins og er. Ég held að ég hafi alveg sýnt þjálfurunum að maður getur staðið í markinu þarna, svo er bara að bíða og sjá."
Athugasemdir