Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
   þri 13. október 2015 22:02
Elvar Geir Magnússon
Raggi Sig: Skiptir ekki máli þegar við förum til Frakklands
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mjög svekkjandi, sérstaklega þar sem þetta var ekki aukaspyrna. Þetta var algjört rugl," sagði Ragnar Sigurðsson eftir 1-0 tapið gegn Tyrklandi ytra í kvöld. Ragnar var ósáttur við aukaspyrnudóminn sem Tyrkir skoruðu úr en var ánægður með varnarleik liðsins í heild í leiknum.

Lestu um leikinn: Tyrkland 1 -  0 Ísland

„Við duttum aftur í mjög góða liðsheildarvörn í dag, allir voru að hjálpa til og vinna saman. Það var ekkert vandamál. Það var bara svekkjandi að við náðum ekki að skapa fleiri færi."

Gríðarlegur hávaði og stemning var á leikvanginum.

„Það var bara gaman að þessu. Það er alltaf gaman að spila í svona stemningu," sagði Ragnar. Íslandi mistókst að landa sigri í þremur síðustu leikjum sínum í undankeppninni.

„Þessir þrír síðustu leikir skipta engu máli þegar við förum til Frakklands. Það var leiðinlegt að ná ekki sigri í síðustu þremur leikjunum en við lítum bara fram á við."

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner