„Þeir gerðu ekki nokkurn skapaðan í síðari hálfleik en siðan fengu þeir þessa ódýru aukaspyrnu," sagði Viðar Örn Kjartansson við Fótbolta.net eftir 1-0 tapið gegn Tyrkjum í kvöld.
Ísland endaði í öðru sæti riðilsins með þessum úrslitum þar sem Tékkar unnu Hollendinga í kvöld.
„Ég held að menn verði smá svekktir í kvöld og næstu daga að hafa ekki endað í fyrsta sæti en þegar við lítum til baka þá erum við komnir í keppnina þó auðvitað hefði verið sterkt að vinna riðilinn."
Hér að ofan má sjá viðtalið en í því má heyra gífurleg læti í tyrkneskum blaðamanni sem lét öllum illum látum nokkrum metrum í burtu.
Athugasemdir