þri 13. október 2015 10:11
Magnús Már Einarsson
Victor Valdes til Newcastle?
Powerade
Á leið til Newcastle?
Á leið til Newcastle?
Mynd: Getty Images
Aftur í enska boltann?
Aftur í enska boltann?
Mynd: Getty Images
Hér að neðan er allt helsta slúðrið úr enska boltanum í dag.



Aston Villa vill fá David Moyes til að taka við af Tim Sherwood. (Times)

Newcastle ætlar að reyna að fá Victor Valdes frá Manchester United eftir að ljóst var að Tim Krul verður frá keppni út tímabilið. (Star)

Newcastle mun fá nokkrar milljónir punda í skaðabætur vegna meiðsla Krul en hann sleit krossband í leik með hollenska landsliðinu gegn Kasakstan. (Mirror)

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, fylgdist með Andriy Yarmolenko kantmanni Dynamo Kiev í landsleik Úkraínu og Spánar í gærkvöldi. (Independent)

Vincent Kompany ætlar að spila með Belgum gegn Ísrael í kvöld þrátt fyrir að vera ennþá tæpur vegna meiðsla á kálfa. (Telegraph)

Memphis Depay og Robin van Persie rifust á æfingu hollenska landsliðsins í gær. (Express)

Jurgen Klopp ætlar ekki að fá leikmenn til Liverpool frá sínu fyrrum félagi Dortmund. (Bild)

Alexis Sanchez verður launahæsti leikmaður Arsenal ef hann gerir nýjan samning við félagið. Mesut Özil er einnig að fara í viðræður um nýjan samning sem gefur myndarlega launahækkun. (Mail)

Tony Pulis, stjóri WBA, vill fá Ignacio Camacho miðjumann Malaga. (AS)

Southampton vill gera nýjan samning við Ronald Koeman en hollenska knattspyrnusambandið vill fá hann til að taka við af Danny Blind. (Mail)

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur sent njósnara að fylgjast með Riechedly Bazoer, 19 ára miðjumanni Ajax. (Mirror)

Peter Reid gæti snúið aftur til Sunderland sem hluti af þjálfaraliðinu hjá Sam Allardyce. (Star)

Umboðsmaður Gareth Bale segir að ekkert hatur sé á milli leikmannsins og Cristiano Ronaldo. (Guardian)

Lee Bowyer og Harry Kewell, fyrrum liðsfélagar hjá Leeds, eru að þjálfa U21 árs lið Watford. (Watford Observer)

Rio Ferdinand er ósáttur við að Sir Alex Ferguson hafi ekki látið sig hafa fyrirliðabandið á sínum tíma. (CNBC)
Athugasemdir
banner
banner
banner