Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. desember 2017 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - Leikið um 3. sætið í Bose mótinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur dagsins:
20:00 Víkingur R. - Fjölnir (leikur um 3. sætið)

Það verður spilað um þriðja sætið í Bose mótinu í dag. Víkingur Reykjavík og Fjölnir mætast í leiknum.

Fjölnir hefur hingað til tapað 1-0 gegn Stjörnunni og unnið FH 1-0.

Víkingur tapaði eftirminnilega 8-1 gegn Breiðabliki áður en liðið hafði betur gegn Vesturbæjarstórveldinu KR, 3-1.

Leikur Víkings og Fjölnis hefst á slaginu 20:00 og er hann í Egilshöll. Hann verður sýndur á Sporttv líkt og allir leikirnir hingað til.

Úrslitaleikurinn í mótinu verður svo á morgun þegar Stjarnan og Breiðablik kljást í Fífunni í Kópavoginum.
Athugasemdir
banner
banner
banner