Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. janúar 2018 19:41
Arnar Geir Halldórsson
Botnlið La Liga rekur þjálfarann (Staðfest)
Rekinn
Rekinn
Mynd: Getty Images
Michel Gonzalez hefur verið rekinn úr starfi sem knattspyrnustjóri Malaga.

Malaga situr í næstneðsta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með jafnmörg stig og Las Palmas, aðeins ellefu stig og eru sjö stigum frá öruggu sæti.

Malaga tapaði fjórða leik sínum í röð síðastliðinn föstudag og í kjölfarið fékk Michel reisupassann en hann hefur áður stýrt liðum á borð við Marseille, Olympiacos og Sevilla.

Við starfinu tekur Jose Gonzalez, 51 árs gamall Spánverji sem starfaði síðast fyrir Beijing Guoan í Kína en hefur einnig þjálfað Granada og fleiri smærri lið á Spáni.
Athugasemdir
banner
banner
banner