Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. janúar 2018 15:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eddie Howe: Við munum njóta kvöldsins
Eddie Howe hughreystir Jack Wilshere.
Eddie Howe hughreystir Jack Wilshere.
Mynd: Getty Images
„Þetta er risa sigur fyrir okkur," sagði Eddie Howe, knattspyrnustjóri Bournemouth, eftir 2-1 sigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Allir sigrar í ensku úrvalsdeildinni eru mikilvægir. Þetta var jafn leikur og það var ekki mikið sem skildi liðin að, en við sýndum karakter að koma til baka eftir að hafa lent undir."

„Ég er hæstánægður með viðhorf leikmanna minna í dag. Við erum í mjög góðu formi."

„Í þessari deild, ef þú getur náð tveimur eða þremur sigrum þá getur staða þín breyst. Svo ef þú tapar tvisvar eða þrisvar þá breytist allt líka. Við höfum reynt að halda stöðugleika."

„Við munum njóta kvöldsins, þetta er frægur sigur fyrir félagið."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner