Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   sun 14. janúar 2018 12:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fótbolta.net mótið: Vestri með sigur á Víði
Sólon skoraði bæði fyrir Vestra.
Sólon skoraði bæði fyrir Vestra.
Mynd: Fótbolti.net - Orri Rafn Sigurðarson
Víðir 1 - 2 Vestri
1-0 Patrekur Örn Friðriksson ('65)
1-1 Sólon Breki Leifsson ('70)
1-2 Sólon Breki Leifsson ('77)

Vestri byrjar Fótbolta.net mótið vel, með sigri á Víði Garði í Reykjaneshöllinni í morgun.

Fyrri hálfleikurinn var markalaus en eftir 20 mínútur í þeim seinni kom Patrekur Örn Friðriksson Víði yfir.

Vestri gafst ekki upp og jafnaði fimm mínútum síðar. Sólon Breki Leifsson, sem gekk í raðir Vestra frá Breiðabliki í nóvember, skoraði síðan sigurmarkið á 77. mínútu, en hann skoraði bæði.

Þetta var fyrsti leikur liðanna í mótinu, riðli 2 í B-deild. Með í riðlinum eru Haukar og Selfoss sem mætast seinna í dag.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner