Jose Mourinho, stjóri Man Utd, útilokar ekki að styrkja lið sitt í janúar en segir þó eðlilegra að versla inn yfir sumartímann.
Enskir fjölmiðlar eru nokkuð vissir um að Man Utd sé að ganga frá kaupum á Alexis Sanchez frá Arsenal og því var Mourinho spurður út í málið á blaðamannafundi fyrir leik Man Utd og Stoke sem fram fer á morgun.
„Vanalega fjárfestir maður í leikmönnum á sumrin. Það er tíminn til að skapa jafnvægi í leikmannahópnum og styrkja hann."
„En stundum er hægt að gera góð kaup í janúar. Ef stórkostlegt tækifæri kemur upp í janúar reynir maður að stökkva á það. Kannski gerist það, kannski gerist það ekki," segir Mourinho.
Athugasemdir