Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. janúar 2018 15:42
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Siggi Dúlla stýrði Víkingaklappinu í Indónesíu
Icelandair
Mynd: KSÍ - Óskar Örn Guðbrandsson
Víkingaklappið er vinsælt um allan heim og þar er Indónesía engin undanteking.

Búningastjórinn Siggi Dúlla sá um að stjórna klappinu eftir 4-1 sigur Íslands í vináttulandsleiknum dag.

„Það sem við lærðum af Asíuförinni. Siggi Dúlla er taktlaus!," skrifaði Maggi Pera á Twitter.

Albert Guðmundsson skoraði þrennu í leiknum en Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari sagði við 433.is að Siggi hefði þó stolið senunni!

„Það er hundleiðinlegt að skora þrennu en Siggi Dúlla stelur sviðsljósinu, það eru allir að tala um Sigga en ekki neinn um Albert!" sagði Heimir kíminn.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner