Martin O'Neill hafnaði tilboði Stoke um að taka við stjórnartaumunum hjá félaginu.
Mark Hughes var látinn taka pokann sinn á dögunum og gengur leitin að eftirmanni hans erfiðlega en áður hafði Quique Sanchez Flores, stjóri Espanyol, hafnað viðræðum við Stoke.
Þá var leitað til hins 65 ára gamla Norður-Íra, Martin O'Neill, en hann er í starfi sem landsliðsþjálfari Íra.
O'Neill hefur mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni þar sem hann hefur meðal annars stýrt Leicester og Aston Villa en hann er ekki á þeim buxunum að snúa aftur í deildina.
Stoke heimsækir Manchester United annað kvöld í lokaleik 23.umferðarinnar.
Athugasemdir