sun 14. janúar 2018 19:16
Arnar Geir Halldórsson
Þýskaland: Markalaust í fjarveru Aubameyang
Aubameyang gæti hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Dortmund
Aubameyang gæti hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Dortmund
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í dag þar sem óvænt úrslit litu dagsins ljós en þetta var fyrsta umferðin eftir vetrarfrí.

Botnlið Köln vann dramatískan heimasigur á Borussia Mönchengladbach en þetta er aðeins annar sigur Kölnar í vetur og er liðið eftir sem áður langneðst í deildinni, sex stigum á eftir næsta liði og átta stigum frá öruggu sæti.

Þá gerðu Borussia Dortmund og Wolfsburg markalaust jafntefli nú rétt í þessu en Pierre Emerick Aubameyang var fjarri góðu gamni eins og áður hefur verið greint frá.

Úrslit dagsins

Borussia Dortmund 0 - 0 Wolfsburg

Koln 2 - 1 Borussia Mönchengladbach
1-0 Frederik Sorensen ('34 )
1-1 Raffael ('69 )
2-1 Simon Terodde ('90 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 26 22 4 0 66 18 +48 70
2 Bayern 26 19 3 4 78 31 +47 60
3 Stuttgart 26 18 2 6 60 31 +29 56
4 Dortmund 26 14 8 4 53 32 +21 50
5 RB Leipzig 26 15 4 7 60 32 +28 49
6 Eintracht Frankfurt 26 10 10 6 42 35 +7 40
7 Augsburg 26 9 8 9 43 42 +1 35
8 Hoffenheim 26 9 6 11 44 50 -6 33
9 Freiburg 26 9 6 11 36 48 -12 33
10 Werder 26 8 6 12 35 41 -6 30
11 Heidenheim 26 7 8 11 35 44 -9 29
12 Gladbach 26 6 10 10 46 50 -4 28
13 Union Berlin 26 8 4 14 25 42 -17 28
14 Wolfsburg 26 6 7 13 31 44 -13 25
15 Bochum 26 5 10 11 30 54 -24 25
16 Mainz 26 3 10 13 22 46 -24 19
17 Köln 26 3 9 14 20 47 -27 18
18 Darmstadt 26 2 7 17 26 65 -39 13
Athugasemdir
banner
banner
banner