Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   sun 14. janúar 2018 13:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Yfirlýsing frá RB Leipzig: Keita verður hér til 30. júní
Mynd: Getty Images
RB Leipzig hefur komið því á framfæri að miðjumaður liðsins Naby Keita sé ekki á förum til Liverpool í þessum mánuði.

Keita samdi við Liverpool síðasta sumar og var kaupverið á honum um 66 milljónir punda en samkvæmt samkomulaginu verður hann ekki leikmaður Liverpool fyrr en næsta sumar.

Liverpool hefur verið í viðræðum við Leipzig um að fá miðjumanninn fyrr eftir söluna á Philippe Coutinho til Barcelona.

RB Leipzig hefur hins vegar engan áhuga á því að láta Keita fara strax og hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að það muni ekki gerast.

„Naby Keita verður leikmaður RB Leipzig þangað til 30. júní 2018. Við viljum binda enda á sögusagnirnar að hann muni fara til Liverpool í þessum mánuði," segir í yfirlýsingu Leipzig.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner