AC Milan 2 - 0 Genoa
1-0 Carlos Bacca ('5 )
2-0 Keisuke Honda ('64 )
2-1 Alessio Cerci (´90)
1-0 Carlos Bacca ('5 )
2-0 Keisuke Honda ('64 )
2-1 Alessio Cerci (´90)
AC Milan átti ekki í miklum vandræðum með Genoa í fyrsta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.
Kólumbíski markahrókurinn Carlos Bacca kom Milan yfir snemma leiks og leiddu heimamenn í leikhléi.
Eftir rúmlega klukkutíma leik bætti Keisuke Honda svo við öðru marki með skoti langt fyrir utan vítateig.
Alessio Cerci náði að klóra í bakkann fyrir gestina í uppbótartíma en nær komust Genoa ekki.
AC Milan komið í 6.sæti deildarinnar, tveim stigum á eftir nágrönnum sínum í Inter sem mæta Fiorentina síðar í dag.
Athugasemdir