Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. febrúar 2016 15:35
Arnar Geir Halldórsson
Obafemi Martins til Shanghai Shenhua (Staðfest)
Martins að yfirgefa Clint Dempsey
Martins að yfirgefa Clint Dempsey
Mynd: Getty Images
Obafemi Martins er genginn til liðs við kínverska úrvalsdeildarliðið Shanghai Shenhua en hann kemur til félagsins frá Seattle Sounders.

Martins hefur átt góðu gengi að fagna í Bandaríkjunum að undanförnu en hann skoraði 43 mörk í 84 leikjum fyrir Seattle Sounders.

Hjá Shanghai Shenhua hittir hann meðal annars fyrir Demba Ba og Fredy Guarin en liðið endaði í 6.sæti kínversku deildarinnar á síðustu leiktíð.

Ramires, Jackson Martinez og Gervinho eru meðal leikmanna sem hafa gengið til liðs við kínversku ofurdeildina að undanförnu en félagaskiptaglugginn í Kína er enn galopiinn og ekki ólíklegt að fleiri stór nöfn muni fara þangað á næstunni.
Athugasemdir
banner
banner