Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. febrúar 2016 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Stelpurnar okkar mæta Póllandi í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið leikur vináttuleik gegn Póllandi í dag og fer leikurinn fram ytra, nánar tiltekið á Bruk-Bet Nieciecza leikvangnum.

Um er að ræða vináttulandsleik sem er hluti af undirbúningi liðsins fyrir komandi leiki í undankeppni EM.

Ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða og því er hópurinn einungis skipaður leikmönnum úr Pepsi-deildinni en hópinn má sjá hér fyrir neðan.

Leikurinn hefst klukkan 11 á íslenskum tíma og munum við flytja ykkur fréttir úr leiknum um leið og þær berast.

Hópurinn:
Andrea Rán Hauksdóttir, Breiðablik
Guðrún Arnardóttir, Breiðablik
Málfríður Erna Sigurðardóttir, Breiðablik
Sonný Lára Þráinsdóttir, Breiðablik
Svava Rós Guðmundsdóttir, Breiðablik
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Fylkir
Eva Núra Abrahamsdóttir, Fylkir
Sigríður Lára Garðarsdóttir, ÍBV
Guðmunda Brynja Óladóttir, Selfoss
Hrafnhildur Hauksdóttir, Selfoss
Anna María Baldursdóttir, Stjarnan
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Stjarnan
Berglind Hrund Jónasdóttir, Stjarnan
Arna Sif Ásgrímsdóttir, Valur
Elín Metta Jensen, Valur
Elísa Viðarsdóttir, Valur
Thelma Björk Einarsdóttir, Valur

Athugasemdir
banner