þri 14. mars 2017 13:30
Elvar Geir Magnússon
Eldri sonur Messi hefur ekki mikinn áhuga á fótbolta
Sonur Messi fer á Nou Camp til að hitta son Luis Suarez.
Sonur Messi fer á Nou Camp til að hitta son Luis Suarez.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi sagði frá því í viðtali við úrúgvæska sjónvarpsstöð að eldri sonur sinn, Thiago Messi, hafi í raun ekki áhuga á fótbolta. Thiago er fjögurra ára gamall.

Messi var spurður að því hvort hann teldi að Thiago myndi einn daginn feta í hans fótspor.

„Hann hefur í raun ekki mikinn áhuga á fótbolta. Hann fer bara á Nou Camp á leiki hjá mér til að hitta vini sína. Hann fer til að hitta Benja (son Luis Suarez) og fleiri en er ekki hrifinn af fótboltanum," segir Messi.

„Hann er ekki eins og Benja sem er með boltann allan daginn."

Messi á tvo syni, sá yngri heitir Mateo og fæddist í september 2015.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner