Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. mars 2017 12:30
Magnús Már Einarsson
Ronaldo: Ég geri ekki 3000 kviðæfingar á hverjum degi
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo hefur opnað líkamsræktarstöðina CR7 Crunch Fitness í Madrid.

Ronaldo ræddi um líkamsrækt á opnunarhátíð stöðvarinnar í vikunni.

Þar ræddi hann meðal annars hvernig hann heldur kviðvöðvunum við.

„Það er ekki satt að ég geri 3000 kviðæfingar á hverjum degi," sagði Ronaldo.

„Ég geri kviðæfingar yfirleitt 4 eða 5 sinnum í viku og geri þá 200 eða 300 kviðæfingar. Það er ekki gott að gera of mikið því þá getur þú fundið verk í neðra bakinu."
Athugasemdir
banner