Aðstoðarþjálfari Hauka, Sigurbjörn Hreiðarson var léttur, ljúfur og kátur eftir 4-2 sigur sinna manna á KA á heimavelli í kvöld. Eftir að hafa verið undir í hálfleik sýndi liðið sitt rétta andlit í seinni hálfleik og uppskáru sigur.
,,Þetta hefði getað farið á hvorn vegin sem var. Þetta var mjög jafn leikur en við skoruðum sex mörk," sagði Sigurbjörn og bendir þar á að Haukar hafi skorað tvö sjálfsmörk.
,,Það var mikið meiri ákefð hjá okkur í seinni hálfleik. Við töluðum um það í hálfleik að við þyrftum að fara framar á völlinn og pressa varnarmenn KA og fara með okkur menn ofar svo hægt væri að spila í fæturnar á okkar mönnum og það gerðum við," sagði Sigurbjörn sem sagði liðið hafa stimplað sig inn í topp baráttuna með þessum sigri, baráttu sem liðið ætlaði sér að vera í.
Viðtalið við Bjössa er hægt að sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
























