Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   fös 14. júní 2013 22:29
Hafliði Breiðfjörð
Jóna: Fannst einn ákveðinn maður svolítið skemma leikinn
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Áhorfendur hljóta að hafa fengið eitthvað fyrir sinn snúð," sagði Guðrún Jóna Kristjánsdóttir þjálfari FH eftir 5-3 tap gegn Val á Hlíðarenda en FH komst í 2-0 í leiknum.

,,Þetta var hörkuleikur og örugglega mjög skemmtilegt að horfa á. Mikil læti og mörg mörk. Ég er drullufúl með að tapa hérna."

FH komst í 2-0 eftir hálftíma leik, en það kom Guðrúnu Jónu ekkert á óvart.

,,Nei, alls ekki. Við lögðum þetta vel upp og vorum að spila frábærlega fyrstu 35 mínúturnar. Svo komast þær inn í leikinn og ég er mjög ósátt við þriðja markið þar sem mér fannst brotið á mínum varnarmanni og svo er algjörlega fáránlegt víti sem var dæmt. Svo vorum við að reyna að jafna í lokin."

,,við ætluðum að vinna hérna og töldum okkur geta gert það. Ég er samt sátt með framlag stelpnanna þær voru að leggja sig virkilega í þetta. Flott að skora þrjú mörk en að sama skapi ekki gott að fá á sig fimm mörk og það er eitthvað sem við þurfum að bæta. Við sýndum hvernig við getum spilað og erum flott lið en það er svekkjandi að mér fannst einn ákveðinn maður svolítið skemma leikinn,"
sagði Guðrún Jóna sem var ósátt við Óla Njál dómara.

,,Ég var ekkert sátt við hann í dag, en kannski dæmdi hann á báða bóga en ég er mjög ósátt við þriðja markið og vítið," hélt hún áfram en Óli Njáll gaf henni áminningu fyrir að skammast í sér.

,,Maður lifir sig bara inn í leikinn, það væri skrítið ef maður myndi ekki lifa sig inn í þetta og stundum segir maður eitthvað sem maður á ekki að segja. En þeir verða að þola sína gagnrýni eins og við."
Slapp
banner
banner
banner