„Það er rosa gott að vera komin aftur á völlinn en þetta var ekki alveg það sem við ætluðum okkur. Við ætluðum okkur að taka þrjú stig í dag en það gekk ekki upp,“ sagði Margrét María Hólmarsdóttir framherji Þróttar eftir tapið gegn HK/Víkingum í kvöld. Margrét María var að spila fyrsta deildarleik sinn í sumar en hún hefur verið frá vegna meiðsla í upphafi móts.
Margréti fannst andstæðingarnir sýna meiri sigurvilja í kvöld en vill þó alls ekki afskrifa lið sitt í þeirri hörðu baráttu sem framundan er.
„Þær voru ákveðnari. Mér fannst þær vilja þetta meira en við. Inni í klefa þá ætluðum við okkur þrjú stig allan tímann en þegar leikurinn byrjaði var eins og við værum ekki alveg stilltar og ég veit ekki alveg hvað ég á að segja meira“.
„Við eigum fullt af leikmönnum inni eins og Valgerði Jóhanns og Magga er að koma líka og ég og við horfum bara á seinni umferðina. Þetta verður bara „Þróttara-seinni umferð“. Það er nóg eftir af þessu. Við hættum ekki. Við hættum aldrei,“ sagði Margrét María meðal annars en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í sjónvarpinu hér að ofan.

























