fim 14. júní 2018 08:09
Magnús Már Einarsson
Leikjaplanið í enska boltanum fyrir næsta tímabil
Meistarar Manchester City byrja á Emirates.
Meistarar Manchester City byrja á Emirates.
Mynd: Getty Images
Búið er að opinbera leikjaplanið í ensku úrvalsdeildinni fyrir næsta tímabil. Meistararnir í Manchester City hefja leik á Emirates gegn Arsenal.

Manchester United byrjar á heimavelli gegn Leicester og Liverpool fær West Ham í heimsókn.

Erkifjendurnir í Manchester United og Liverpool mætast um miðjan desember á Anfield og í lok febrúar á Old Trafford.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley mæta Southampton í fyrstu umferð, Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton heimsækja nýliða Wolves og nýliðar Cardiff með Aron Einar Gunnarsson innanborðs mæta Bournemouth.

Hér að neðan má sjá fyrstu umferðina. Einhverjir leikdagar eiga eftir að færast til vegna sjónvarpsútsendinga.

Smelltu hér til að sjá leikjaplanið í heild



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner