Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. september 2014 17:42
Alexander Freyr Tamimi
Danmörk: Elmar skoraði í sigri gegn Hólmberti og félögum
Theodór Elmar skoraði fyrir Randers.
Theodór Elmar skoraði fyrir Randers.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bröndby 0 - 2 Randers FC
0-1 Theodór Elmar Bjarnason ('3)
0-2 Djiby Fall ('82)

Theodór Elmar Bjarnason var á skotskónum þegar Randers vann sterkan 2-0 útisigur gegn Bröndby í dönsku Superligunni í dag.

Elmar, sem var frábær í 3-0 sigri Íslands gegn Tyrklandi á dögunum, skoraði fyrsta mark leiksins strax á 3. mínútunni. Hann fékk einnig gult spjald í leiknum.

Þá kom Hólmbert Aron Friðjónsson inn á sem varamaður á 72. mínútu leiksins fyrir Bröndby í sínum fyrsta leik fyrir félagið, en hann er á láni frá skosku meisturunum í Celtic.
Athugasemdir
banner