Ólafur Kristjánsson og lærisveinar í Nordsjælland áttu enn eina endurkomuna í dag þegar liðið vann sigur gegn botnliði Silkeborg.
Silkeborg hefur átt í erfiðleikum með markaskorun en Emil Scheel kom liðinu yfir eftir aðeins fjögurra mínútna leik.
Kasper Lorentzen jafnaði snemma í seinni hálfleik og Uffe Bech tryggði Nordsjælland svo sigurinn með því að skora á 86. mínútu.
Nordsjælland er með 13 stig í þriðja sæti, fimm stigum á eftir toppliði Midtjylland.
Athugasemdir