Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga, var ósáttur með Þórodd Hjaltalín dómara og aðstoðarmenn hans eftir 2-0 tapið gegn Stjörnunni í Pepsi-deildinni í kvöld.
,,Ég er ósáttur með dómgæsluna. Þer fengu ódýrar aukaspyrnur sem þeir skora úr. Það var auðveldara að dæma á okkur yfir höfuð án þess að ég fari út í smáatriði."
,,Frammistaðan okkar var fín. Þetta er jafn leikur og eitt stig er klárlega á borðinu út úr þessum leik ef allt hefði verið í lagi."
Keflvíkingar vildu fá víti í stöðunni 1-0 á 90. mínútu þegar boltinn fór í hendina á Herði Árnasyni. ,,Okkur sýnist að það eigi að vera víti. Hann fer ekki í neinn annan líkamshluta áður en hann fer í hendina og hann er með hendina út frá líkamanum."
Einar Orri Einarsson fékk tvö gul spjöld og þar með rautt undir lok leiksins.
,,Það er svo auðvelt að dæma á Einar. Hann er orðið ákveðið fórnarlamb í þessu öllu saman. Það er afskaplega auðvelt að dæma á hann aukaspyrnur. Hann er svo klaufi að fá sig seinna spjaldið."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir