Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 14. september 2014 15:37
Elvar Geir Magnússon
Noregur: Gummi Tóta skoraði úr aukaspyrnu framhjá Hannesi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Þórarinsson, leikmaður U21-landslið Íslands, skoraði flott mark beint úr aukaspyrnu þegar lið hans Sarpsborg í Noregi vann 2-0 útisigur gegn Sandnes Ulf.

Guðmundur var í byrjunarliði Sarpsborg en fór af velli vegna einhverra meiðsla í seinni hálfleik.

Hannes Þór Halldórsson, Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hannes Þ. Sigurðsson léku allan leikinn fyrir Sandnes en Eiður fékk gult í leiknum.

Sandnes er áfram límt við botnsæti norsku deildarinnar en Sarpsborg siglir lygnan sjó um miðja deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner