Var það upplegg Valsmanna að sparka Aron Elís út úr leiknum? Það var fyrsta spurningin sem Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings, fékk eftir 1-1 jafnteflið við Val í kvöld.
„Það leit þannig út. Ég ætla ekki að fullyrða það en þannig leit það út. Það leit út eins og þetta væri skipulagt. Það lítur út eins og þetta sé skipulagt og hann endar á spítala," sagði Ólafur eftir leik.
„Mér fannst dómarinn alveg gera í buxurnar í dag. Einfalt mál. Það stendur í lögum KSÍ að brot eins og þeir voru að taka trekk í trekk eiga að þýða rauð spjöld og ekkert annað. Ég hefði viljað sjá að minnsta kosti tvo Valsara fara út af í dag."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir