Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum ánægður eftir mikilvægan 2-0 sigur sinna manna gegn Keflavík í Pepsi-deildinni í kvöld.
Rúnar og félagar þurftu á sigri að halda til að dragast ekki aftur úr FH í titilbaráttunni og aukaspyrnumörk frá Pablo Punyed og Veigari Páli Gunnarssyni kláruðu verkefnið.
Rúnar og félagar þurftu á sigri að halda til að dragast ekki aftur úr FH í titilbaráttunni og aukaspyrnumörk frá Pablo Punyed og Veigari Páli Gunnarssyni kláruðu verkefnið.
,,Þeir voru ekki að skapa neitt, þannig að þetta var allt í lagi. Það var smá moment þegar Ingvar var að fíflast inni í eigin teig, það var smá stressandi, en ég hafði svosum þannig séð ekkert miklar áhyggjur," sagði Rúnar Páll eftir leikinn.
,,Þetta var leiðindaveður, en það er nú bara eins og það er á Íslandi. En það er bara fínt að hafa gervigras í stað þess að vera í einhverjum pollum."
Leikjaálagið á Stjörnunni hafði verið talsvert, en liðið fór ansi langt í Evrópudeildinni en fékk loksins frí í landsleikjahléinu á dögunum.
,,Það var náttúrulega fínt að fá að æfa aðeins, við höfum ekki æft mikið í sumar. Þetta hefur bara verið recovery. En loksins fengum við frí til að æfa og strákarnir fengu frí um síðustu helgi, það var gott. Þetta var búið að vera mikið álag."
Hér að ofan má sjá allt viðtalið.
Athugasemdir