Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 14. september 2014 18:29
Hafliði Breiðfjörð
Godsamskipti
Aron Elís er farinn á sjúkrahús.
Aron Elís er farinn á sjúkrahús.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Elís Þrándarson leikmaður Víkings er á leið á sjúkrahús eftir brot Valsmanna á honum í leik sem nú stendur yfir í Víkinni.

Aron Elís er besti leikmaður Víkings og hefur verið frábær í sumar. Svo virðist sem uppleggið hjá leikmönnum Vals hafi verið að sparka Aron Elís niður í leiknum og þrír leikmenn fengu áminningu fyrir að sparka hann niður í fyrri hálfleik. Þeir Haukur Páll Sigurðsson, Kristinn Freyr Sigurðsson og Iain Williamson. Aron Elís fór svo meiddur af velli á sjúkrahús.

Twitter logar vegna spilamennsku Valsmanna en hér að neðan má sjá brot af því helsta.

Elvar Geir Magnússon ristjóri Fótbolta.net
Það er svo augljóst að Valsmenn leggja upp á að brjóta alltaf á Aroni Elís þegar hann fær boltann. Ívar Orri óhræddur við að spjalda.

Guðmundur Marinó fréttamaður Vísis:
Valsarar farnir langt með að sparka Aron Elís út úr leiknum í Víkinni. Ég fyllist viðbjóði, í alvöru #viðbjóður #ekkifótbolti

Guðmundur Marinó fréttamaður Vísis
Leiðrétting, Valsarar eru búnir að sparka Aroni Elís út úr leiknum. Sorglegasta taktík sem ég hef séð í sumar! #pepsi365 #fotboltinet

Hrafnkell Freyr Ágústsson leikmaður Augnabliks
''STRÁKAR SVO NEGLUM VIÐ ÞENNAN ARON ELÍS BARA NIÐUR, HANN ER KELLING OG HÖNDLAR ÞAÐ EKKI'' #gamliskólinn

Einar Gudnason þjálfari Berserkja
Upplegg Vals að sparka Aroni útaf tókst # Pepsí365

Halldor I. Sævarsson stuðningsmaður Víkings
Hvern ætli valsarar að sparka í í seinni hálfleik

Marteinn Briem fyrrverandi leikmaður Víkings
til hamingju valsmenn. aron meiddur utaf. skammarlegt. er þetta bara i lagi? #fairplay #fotbolti

Andri Yrkill Valsson blaðamaður Morgunblaðsins
Þetta upplegg Valsmanna að sparka Aron Elís út úr leiknum er hreint út sagt viðbjóður.

Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net
Aron Elís er víst á leið upp á slysadeild. #sparkaðurúrleik

Arnar Sveinn Geirsson leikmaður Vals
Ég veit ekki betur en að mínir menn hafi fengið gult spjald fyrir allar tæklingarnar. Gerir það sem þú þarft til að vinna.

Arnar Sveinn leikmaður Vals
Óli Þórðar hefur aldrei tæklað neinn er það?

Sindri Björnsson leikmaður Leiknis
Djöfull er pirrandi að lið séu að rembast við að meiða efnilegasta dreng Íslands, viðbjóður. #AEÞ10

Jón Páll Pálmason þjalfari Klepp í Noregi
Valsmenn með 3 spjöld í fyrri hálfleik. Allt fyrir brot á Aroni. Hann á slysó núna.
Still yfir valsmönnum #enginnsegir #fotboltinet

Einar Gudnason þjálfari Berserkja
Aron farinn í sjúkrabíl. Meiðslin líta illa út. Frábært Valur! Taxi for Williamson

Thor Simon fréttamaður Sport.is
Aron Elís farinn á sjúkrahús. Ian James Williamson á að hafa stigið á hásinina hans og samkvæmt Víkingsmönnum viljandi #Fótbolti #Pepsi365

Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður á Stöð 2
Sparkaður út úr leiknum. Aron Elís. Ljótur leikur ef satt reynist. Hvar fáum við svör. Jú Pepsí - mörkin í kvöld. Eina sætið.

Alexander Einarsson íþróttafréttamaður Fótbolta.net
Stay classy Valur #verðaðhaldaafturafmér #skammarlegt
Athugasemdir
banner
banner
banner