Ólafur Karl Finsen virtist hafa skorað löglegt mark í U21-landsleiknum gegn Dönum í dag en dómarinn dæmdi hann brotlegan. Staðan var þá markalaus og ekki mikið eftir.
„Það er eins og dómarinn flauti ósjálfrátt. Hann veit ekki sjálfur hvað hann var að flauta á. Ég spurði hann hvað hefði verið að en hann vissi það ekki. Það var eins og hann hefði bara flautað út af einhverju," sagði Ólafur eftir leikinn.
Markvörður Dana missti boltann klaufalega og Ólafur skoraði en dómarinn dæmdi markið ógilt. Mögulega hefði hann getað dæmt hendi á Ólaf.
„Þetta hefði farið langleiðina með þetta en svona er þetta sport. Það er ekkert hægt að væla núna."
Danir komust yfir á lokamínútu venjulegs leiktíma. Ísland jafnaði í uppbótartíma en útivallarmarkið kom Dönum áfram.
Athugasemdir