Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   þri 14. október 2014 09:00
Magnús Már Einarsson
Sverrir Ingi: Þurfum að gera meira sóknarlega
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Möguleikinn er fyrir hendi. Við sýndum með hörkuleik úti í Danmörku að ef við höldum sama aga og sama skipulagi þá er allt fyrir hendi," segir Sverrir Ingi Ingason fyrirliði U21 árs landsliðsins um leikinn gegn Dönum klukkan 16:15 í dag.

Fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli á föstudag en íslenska liðið spilaði gífurlega þéttan varnarleik þar.

,,Oft er umdeilt hvernig þú liggur varnarlega. Okkar styrkleikar liggja í því að við erum sterkir varnarlega. Þeir eru með mjög gott sóknarlið og við bárum virðingu fyrir því að þeir skoruðu flest mörk af öllum í undankeppninni."

,,Við héldum þeim frá markinu okkar í 90 mínútur og það gefur okkur aukið sjálfstraust en við þurfum að gera meira sóknarlega ef við ætlum að vinna þá," sagði Sverrir Ingi sem býst við öðruvísi leik í dag.

,,Við þurfum að vera duglegri að halda í boltann. Við erum á heimavelli og þá fær maður ósjálfrátt meira sjálfstraust og þorir að senda sendingar sem þú þorir ekki á útivelli. Með stuðningi áhorfenda getum við náð að mynda pressu á þá frekar en þeir á okkur."

Hér að ofan má sjá ofan
Athugasemdir
banner
banner
banner