Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 14. október 2014 12:36
Alexander Freyr Tamimi
Þjálfari Dana: Megi besta liðið vinna
Jess Thorup.
Jess Thorup.
Mynd: Getty Images
Jess Thorup, U21 landsliðsþjálfari Danmerkur, vonar að sjálfsögðu að sínir menn geti komist alla leið í lokakeppni EM 2015 með því að leggja Ísland að velli í umspilinu á Laugardalsvelli í kvöld.

Fyrri umspilsleik liðanna lauk með markalausu jafntefli, en nú eru Danir mættir til Íslands. Býst Thorup við erfiðum leik.

,,Ég sagði fyrir fyrri leikinn að þetta yrðu tveir mjög erfiðir leikir. Fyrri leikurinn í Danmörku reyndist okkur mjög erfiður, Ísland varðist mjög vel líkt og við bjuggumst við. Nú spilum við á Íslandi og ég býst ekki við auðveldari leik," sagði Thorup við Fótbolta.net.

,,Þeir fóru ekkert í taugarnar á mér. Ég hef séð marga leiki með þeim og vissi að þeir væru góðir varnarlega. Auðvitað vildum við skora, en í svona tvíhöfðum er mjög mikilvægt að skora á útivelli og okkur tókst að koma í veg fyrir að Ísland gerði það. Núna getum við skorað mikilvægt útivallarmark."

,,Þegar lið er í umspili, eins og Ísland, þá er alltaf svekkjandi að ná ekki að taka síðasta skrefið og komast í úrslitakeppnina. Íslendingar yrðu svekktir líka. Við vissum það að þetta yrði erfitt í umspili og við sjáum hvað setur eftir leik, megi besta liðið vinna."


Viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner