Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 14. október 2017 23:45
Kristófer Jónsson
Ian Wright gagnrýnir Batshuayi
Mynd: Getty Images
Ian Wright, fyrrverandi leikmaður Arsenal, var ekki hrifinn af framistöðu Michy Batshuayi, framherja Chelsea, í 2-1 tapi liðsins gegn Crystal Palace í dag.

Batshuayi kom inní lið Chelsea í dag í fjarveru Alvaro Morata en Belginn náði ekki að hjálpa liði sínu að vinna botnliðið.

Ian Wright gagnrýndi framistóðu Batshuayi í leiknum og sagði hann vanta markanef. Þá sagði hann einnig að hreyfingar hans án boltans væru slakar.

Wright gekk einnig svo langt að segja að hann myndi frekar láta hinn 20 ára gamla Tammy Abraham leiða línuna frekar en Batshuayi. Chelsea situr eftir leikinn í fimmta sæti deildarinnar og er nú þegar búið að missa Manchester liðin langt frammúr sér.
Athugasemdir
banner
banner