Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 14. október 2017 18:01
Kristófer Jónsson
Jón Rúnar: Kröfur á að hann taki okkur lengra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög ánægður með þetta. Það eru kröfur á að hann taki okkur lengra. Það vita það allir að við viljum fara lengra í Evrópu og ná stöðugleika hérna heima." sagði Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, um komu Ólafs Kristjánssonar.

Ólafur tekur við FH af Heimi Guðjónssyni sem að var látinn taka poka sinn í lok tímabils. Heimir naut gífurlegrar velgengni hjá FH eftir að hann tók við árið 2008. Jón Rúnar viðurkennir að það hafi verið mjög erfitt að láta Heimi fara.

„Það eru engin orð sem geta lýst því almennilega en sem betur fer eru þetta ekki ákvarðanir sem að við þurfum að taka á hverjum degi. Þannig að við vonum að þegar það er gert að það sé gert af skynsemi og að eitthvað sé á bakvið ákvörðunina."

Jón Rúnar býst við annarsömum vetri hjá Óla og að breytingar verði á leikmannahóp FH.

„Það sjá það allir að við þurfum að blanda þetta uppá nýtt og það er ekki komist hjá endurnýjun. Eins og alltaf er það þjálfarinn sem hefur síðasta orðið í leikmannamálum. Nú verður lagst í þá vinnu og skoðað hans væntingar og svo förum við yfir það."
Athugasemdir
banner
banner