Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   mán 14. nóvember 2016 12:38
Magnús Már Einarsson
Malta
Maltneskir fjölmiðlamenn fengu fjölda bolamynda með Gylfa
Icelandair
Gylfi var mjög vinsæll á æfingu í morgun.  Hér er hann með maltneskum blaðamanni sem fékk nokkrar myndir með Gylfa.
Gylfi var mjög vinsæll á æfingu í morgun. Hér er hann með maltneskum blaðamanni sem fékk nokkrar myndir með Gylfa.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Maltneskir fjömiðlar stukku á Gylfa Þór Sigurðsson og fleiri íslenska landsliðsmenn um leið og þeir mættu á æfingu Ta'Qali leikvanginum í dag.

Þeir byrjuðu þó ekki á að taka viðtöl við Gylfa heldur var sett í forgang hjá fjölmiðlamönnunum að fá bolamyndir með honum og eiginhandaráritanir.

„Þetta er algjör meistari. Þetta er toppmaður," sagði Gylfi um einn blaðamanninn sem elti Gylfa á röndum og fékk nokkrar myndir með honum sem og áritanir.

Gylfi og aðrir íslenskir landsliðsmenn fá mun meiri athygli en áður eftir frábæra frammistöðu á EM í sumar.

„Við finnum það í gegnum ferðalögin og hvernig fjölmiðlar eru að mæta á æfingar og leiki hjá okkur. Það er miklu meira en það var. Það fylgir þessu góða gengi á Evrópumótinu í sumar."

Gylfi er meiddur og verður ekki með gegn Möltu á morgun í lokaleik ársins hjá landsliðinu. Um er að ræða sautjánda leikinn hjá landsliðinu á þessu magnaða ári.

„Ef þú lítur á hvar við vorum fyrir 4-5 árum og hvar við erum nuna þá hefur þetta verið frábært ár fyrir landsliðið og okkur leikmenn," sagði Gylfi.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar ræðir hann meiðslin meira.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner