þri 14. nóvember 2017 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pereira líður vel hjá Valencia: Vil vera hér áfram
Mynd: Getty Images
Andreas Pereira nýtur lífsins hjá Valencia. Pereira er í láni hjá spænska félaginu frá Manchester United, en þessa stundna vill hann helst vera áfram í herbúðum Valencia.

Jose Mourinho gæti ákveðið að kalla Pereira til baka úr láni þegar janúarglugginn opnar.

Pereira vonast hins vegar til að vera áfram hjá Valencia þar sem honum líður mjög vel.

„Það væri kostur fyrir mig að vera hér (hjá Valencia) áfram, það myndi hjálpa mér," sagði Pereira við Super Deporte.

„Ég er ánægður hérna og vil halda hér áfram, planið hefur alltaf verið að vera hjá Valencia þangað til í júní. Ég veit að United getur kallað mig til baka í janúar, en ég er einbeittur á að vera hér."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner