Gísli Eyjólfsson leikmaður Breiðabliks var valinn besti leikmaður Bose mótsins af sérstakri dómnefnd mótsins.
Breiðablik vann 2-0 sigur gegn Stjörnunni í úrslitaleik í kvöld. Gísli skoraði annað mark leiksins.
Breiðablik vann 2-0 sigur gegn Stjörnunni í úrslitaleik í kvöld. Gísli skoraði annað mark leiksins.
Eftir leikinn fékk Gísli vegleg verðlaun frá Bose og Beint í mark.
Tómas Meyer ræddi við Gísla eftir verðlaunaafhendinguna og má sjá viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Willum Þór Willumsson fékk verðlaun sem markakóngur mótsins. Hann og Gísli skoruðu báðir þrjú mörk en Willum var sneggri að skora sín þrjú og fékk verðlaunin.
Athugasemdir