Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fim 15. janúar 2015 21:58
Daníel Freyr Jónsson
Ólafur Þórðar: Úr fornöld þetta kerfi
Ólafur Þórðarson.
Ólafur Þórðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
,,Þetta var mjög dapurt hjá okkur í dag, en engu að síður þá heldur lífið áfram," sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings, eftir 4-0 ósigur gegn Val á Reykjavíkurmótinu.

Staðan var þegar orðin 3-0 eftir 30 mínútur og segir Ólafur sína menn hafa gefið auðveld mörk.

,,Við gáfum þeim tvö mjög auðveld mörk í byrjun leiks og gegn svona sterku liði eins og Val, þá er erfitt að snúa því við. Við förum að ýta aðeins framar á völlinn og þá opnast fyrir aftan okkur. Við bara lentum í miklu basli í dag."

,,Það vantar meirihlutan af varnarlínuna og markmanninn, en engu að síður þá ætlast maður til að þeir sem maður er að gefa tækifæri sinni því eins og menn. Því miður gekk það ekki í dag."

Víkingar hafa samið við markvörðinn Thomas Nielsen um að leika með liðinu í sumar. Hann fær hinsvegar ekki keppnisleyfi fyrr en 20. febrúar og er Ólafur mjög ósáttur með þá reglu.

,,Það er náttúrulega skandall að samningsbundnir leikmenni skuli ekki fá að taka þátt í Reykjavíkurmótinu. Ég á ekki til eitt aukatekið orð."

,,Það er náttúrulega úr fornöld þetta kerfi hjá KRR (Knattspyrnuráð Reykjavíkur), því miður."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner