Franska félagið Bordeaux ætlar ekki að selja brasilíska kantmanninn Malcom til Arsenal í þessum mánuði.
Arsenal er að skoða leikmenn sem gætu fyllt skarð Alexis Sanchez sem virðist vera á förum.
Malcom hefur verið sterklega orðaður við Arsenal en Bordeaux hefur nú blásið á þær sögusagnir.
Arsenal er að skoða leikmenn sem gætu fyllt skarð Alexis Sanchez sem virðist vera á förum.
Malcom hefur verið sterklega orðaður við Arsenal en Bordeaux hefur nú blásið á þær sögusagnir.
„Malcom fer ekki," sagði Nicolas de Tavernost en hann er eigandi M6 sjónvarpsstöðvarinnar sem á Bordeaux.
Síðan Malcom kom til Bordeaux árið 2016 hefur hann skorað 15 mörk í 68 deildarleikjum.
Athugasemdir