mán 15. janúar 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Cech: Ég hefði átt að gera betur
Ósáttur með sjálfan sig.
Ósáttur með sjálfan sig.
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Petr Cech hefur tekið á sig sökina á fyrra marki Bournemouth í leik liðanna í gær.

Bournemouth hafði betur 2-1 en Callum Wilson jafnaði leikinn 1-1 á 70. mínútu.

Cech kom út úr marki sínu til að hirða fyrirgjöf en Wilson var á undan í boltann og náði að skora.

„Auðvitað er ég svekktur með fyrsta markið því ég reiknaði með að ná fyrirgjöfinni á réttum tíma," sagði Cech.

„Wilson var fljótari og komst fyrir framan mig. Þetta var spurnig um sekúndubrot en ég hefði átt að gera betur en þetta."
Athugasemdir
banner
banner
banner