Michael Zorc, yfirmaður íþróttamála hjá Borussia Dortmund, hefur gagnrýnd framherjann Pierre-Emerick Aubameyang harðlega.
Aubameyang var í agabanni í markalausu jafntefli Dortmund gegn Wolfsburg í gær. Framherjinn var settur í agabann eftir að hann mætti ekki á liðsfund hjá Dortmund.
„Á einhverjum tímapunkti hefur þú ekki lengur þolinmæði fyrir þessu," sagði Zorc um agaleysi Aubameyang.

„Ég veit ekki hvað er í gangi í hausnum á honum. Við ræddum málin saman í dag. Við erum ekki vanir svona hegðun hjá honum og þetta getur ekki gengið svona áfram."
Aubameyang var markakóngur þýsku deildarinnar í fyrra en sögusagnir eru um að hann gæti fært sig um set núna í janúarglugganum. Hann hefur meðal annars verið orðaður við peningana í Kína.
Athugasemdir