Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 15. janúar 2018 08:30
Arnar Geir Halldórsson
Klopp: Stór yfirlýsing að skora fjögur mörk eftir brotthvarf Coutinho
Liverpool saknaði ekki Coutinho í gær
Liverpool saknaði ekki Coutinho í gær
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var sigurreifur eftir eins marks sigur á Man City í sjö marka leik í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Félagaskipti Philippe Coutinho fóru líklega ekki framhjá neinum knattspyrnuáhugamanni en það var ekki að sjá að hans væri saknað í sóknarleik Liverpool í gær og hafði Klopp orð á því í leikslok.

„Að skora fjögur mörk nokkrum dögum eftir að Phil Coutinho yfirgefur félagið er stór yfirlýsing."

„Við sjáum til hvað þessi sigur mun gefa okkur. Það er ekki gott að fá á sig þrjú mörk en þegar við spilum svona góðan fótbolta kemur hitt á endanum,"
segir Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner