Manchester United hefur lagt áhuga sinn á franska framherjanum Antoine Griezmann til hliðar nú þegar útlit er fyrir að Alexis Sanchez sé á leið til félagsins.
Líklegt er að Sanchez verði kynntur sem leikmaður United á allra næstu dögum.
Griezmann verður áfram hjá Atletico Madrid, allavega til sumars, en vonast svo til að fara til Barcelona sem reynt hefur að fá hann.
Frakkinn hefði getað yfirgefið Atletico síðasta sumar en ákvað að vera áfram hjá félaginu og sýna því hollustu meðan það var í kaupbanni.
Banninu hefur verið aflétt og Diego Costa er kominn til félagsins. Reiknað er með að Griezmann færi sig um set í sumar.
Hinn 26 ára Griezmann er með fimm mörk í sextán leikjum í La Liga á þessu tímabili.
Athugasemdir