Henrikh Mkhitaryan er ekki í leikmannahópi Manchester United sem fær Stoke City í heimsókn í enska boltanum í kvöld.
Jose Mourinho segir ákvörðunina ekki vera taktíska sem bendir til þess að Armeninn sé á leið frá félaginu á næstunni.
Jose Mourinho segir ákvörðunina ekki vera taktíska sem bendir til þess að Armeninn sé á leið frá félaginu á næstunni.
„Ég væri að ljúga ef ég segði að þetta væri taktísk ákvörðun," sagði Mourinho við Sky Sports fyrir leikinn.
„Ég valdi bara leikmenn sem eru með hausinn 100% hjá Manchester United og ekki með neinar efasemdir um framtíðina.
„Það er erfitt fyrir leikmenn að gera sitt besta þegar það eru efasemdir. Það gerir ekkert nema auka pressuna og það er best fyrir alla að skilja þannig menn eftir heima."
Alexis Sanchez var ekki í hópi Arsenal sem tapaði gegn Bournemouth í gær. Líklegt er að Alexis fari til Man Utd og Mkhitaryan til Arsenal.
Athugasemdir