Rúrik Gíslason skoraði tvö mörk þegar þýska félagið Nurnberg burstaði Hearts frá Skotlandi 5-0 í æfingaleik um helgina.
Rúrik skoraði fyrsta og fjórða mark Nurnberg í leiknum.
Nurnberg hefur verið í æfingabúðum á Spáni undanfarna daga og leikurinn fór fram þar.
Rúrik hefur ekki átt fast sæti í liði Nurnberg á tímabilinu en hann hefur einungis spilað fjóra leiki í þýsku B-deildinni í vetur.
Nurnberg, sem er í 3. sæti í þýsku B-deildinni, hefur leik að nýju í næstu viku eftir vetrarfrí. Þá mætir liðið Jahn Regensburg.
Hér að neðan má sjá mörkin sem Rúrik skoraði.

Well done @GislasonRurik. Scored 2 goals for @1_fc_nuernberg in a 5-0 win vs. Hearts. https://t.co/cOGSRGWmrc ⚽️⚽️🇮🇸👏 #TeamTotalFootball pic.twitter.com/AJF3y3TRIR
— Total Football (@totalfl) January 15, 2018
Athugasemdir