„Mér líst mjög vel á búninginn. Mér finnst hann koma vel út. Það er gaman að sjá nýja nálgun með rauða og hvíta litin," sagði Guðni Bergsson, formaður KSÍ, um nýja landsliðsbúninginn sem var opinberaður í dag.
Smelltu hér til að sjá myndir af búningnum
Smelltu hér til að sjá myndir af búningnum
Guðni reiknar sjálfur með að klæðast treyjunni á HM í Rússlandi.„Ég fer örugglega í hann við einhver tækifæri. Maður þarf alltaf að vera klæddur í einhver jakkaföt í fínu stúkunni en auðvitað mun maður skella sér í treyjuna. Mér líst mjög vel á hana."
Skiptar skoðanir eru á nýju treyjunni og Guðni fagnar því.
„Það er fínt að hafa umræðu um þetta. Þetta sýnir að fólki er ekki sama. Það væri óeðlilegt ef allir væru á sömu skoðun. Ég efast ekki um að hún verði að einhverju leyti umdeild og þannig er það oft með áhugaverða hönnun."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir