Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. apríl 2014 20:42
Alexander Freyr Tamimi
Dortmund í bikarúrslit eftir sigur gegn Wolfsburg
Dortmund er komið í úrslit.
Dortmund er komið í úrslit.
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund 2 - 0 Wolfsburg
1-0 Henrikh Mkhitaryan ('12)
2-0 Robert Lewandowski ('43)

Borussia Dortmund er komið í þýsku bikarúrslitin eftir 2-0 sigur gegn Wolfsburg í kvöld.

Armenski landsliðsmaðurinn Henrikh Mkhitaryan kom Dortmund í 1-0 á 12. mínútu og Robert Lewandowski tvöfaldaði forystu þeirra gulklæddu á markamínútunni rétt fyrir leikhlé í einum af síðustu leikjum sínum fyrir félagið áður en hann fer til Bayern.

Ekki voru skoruð fleiri mörk í þessum leik og Dortmund er því á leið í úrslitin eftir þennan 2-0 sigur.

Þar mæta lærisveinar Jurgen Klopp annað hvort Bayern Munchen eða Kaiserslautern, en leikur liðanna fer fram annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner